Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Stop the financial casino!

Ísland er ekki til sölu! Dagskrá Attac á Íslandi á menningarnótt

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Attac á Íslandi - Dagskrá á menningarnótt
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 18 Ágúst 2010 00:07 )
 

Ísland er ekki til sölu! Dagskrá Attac á Íslandi á menningarnótt

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fundur Attac um Magma-málið þann 28. júlí tókst mjög vel og var fjölsóttur, þótt hann væri haldinn í miðjum sumarfríum. Ráðherrar skrópuðu reyndar, og heyrst hefur að það hafi verið af því að þeir þorðu ekki að mæta á fundinn. Í framhaldi af fundinum stóð Attac fyrir að safna undirskriftum undir áskorun orkuauðlinda um Magma málið á Gay Pride. Viðbrögð fólks voru mjög góð og mörg hundruð manns skrifuðu undir áskorunina.

            Á menningarnótt heldur Attac á Íslandi áfram að berjast gegn einkavæðingu íslenskra orkuauðlinda af miklum krafti, og nú með menningardagskrá sem stendur allan daginn og fram á kvöld. Dagskráin verður fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Fjöldinn allur af úrvals rithöfundum, tónlistarfólki, öðrum listamönnum o.fl. munu flytja fjölbreytt menningarefni allan daginn, og kórar syngja. Fólki gefst líka kostur á að undirrita áskorun orkuauðlinda.is allan daginn. Dagskráin verður undir yfirskriftinni „Ísland er ekki til sölu“, sem rímar skemmtilega við eitt helsta slagorð hinna alþjóðlegu Attac samtaka, „The world is not for sale“.

            Á fimmtudagskvöld verður sjálfboðaliðafundur í Húsinu til að undirbúa framkvæmd dagskrárinnar. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að fjölmenna í Húsið og taka þátt í undirbúningnum. Ísland er ekki til sölu!

 

Um undirskriftasöfnunina frá Sigga hrelli

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kæru félagar,

Magma málið er nú í biðstöðu.
Ný nefnd hefur verið skipuð sem úrskurða á um lögmæti viðskiptanna, líkt og síðasta nefnd þar á undan.

Með fullri virðingu fyrir lögum er samt verið að afvegaleiða umræðuna.
Þetta er pólitískt ágreiningsefni fremur en lagalegt.
Það skortir hins vegar vilja og kjark hjá ríkisstjórninni til að takast á við það.

Það er orkuútrásin sem við horfumst í augu við.
Þjóðerni útrásarvíkinganna er ekki aðalatriðið heldur leikreglur, siðferði og undirliggjandi tilgangur.

Ef við viljum auka þrýsting á ríkisstjórnina þurfum við fleiri undirskriftir, 16 þúsund eru ekki nóg.
Þess vegna hefur sú hugmynd komið upp að safna undirskriftum á blöð.
Næsti laugardagur (Gleðigangan) og 21. ágúst (Menningarnótt) eru tilvaldir dagar.
Til stendur að hittast nk. laugardagsmorgun í Húsinu, Höfðatúni 12 og skipuleggja þetta átak.
Staðfesting (ef næg þátttaka fæst) með tímasetningu verður send út á föstudagskvöldið.

Vinsamlegast hafið samband sem fyrst ef þið sjáið ykkur fært að vera með í þessu.
Einnig gæti þurft aðstoð við að slá undirskriftirnar inn í tölvu.
Ég get því miður ekki svarað tölvupósti eftir hádegi á morgun fram á föstudagskvöld.

Kær kv.- Sigurður - sími 821-8272.

(einnig má skrá sig í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. )

 

Fimm punktar Elvíru Mendes á Magma-fundi 28. júlí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
1. My opinion on the Magma case is a view from European Law rather than a view from Icelandic law. These are different perspectives that need to be put together. But in EU/EEA legal order national law must be interpreted in
accordance with European law.

2. We need a new energy and resources policy in Iceland base don a strong sustainable development approach.

3. European law is neutral regarding ownership of natural resources and property rights.

4. It has been hold that international law recognises permanent sovereignty and people´s ownership of natural resources (peoples and not States). See article from Duruigbo, Emeka: Permanent sovereignty and peoples' ownership of natural resources in international law - http://www.allbusiness.com/legal/international-law/1086332-1.html

5. Citizens have rights and civic duties in a democratic system. Duties are as important as rights. Participation in energy and natural resources policy obliges citizens to educate themselves in order to collaborate with legislator.
Síðast uppfært ( Föstudagur, 06 Ágúst 2010 11:19 )
 

Ræða Sólveigar Jónsdóttur, formanns Attac, í Iðnó 28. júlí 2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Kæru félagar, ágætu fundargestir,

Attac á Íslandi boðaði til þessa fundar hér í kvöld vegna áforma um að einkavæða orkuauðlindir Ísland. Nú hefur orðið þar nokkur viðsnúningur, en ljóst er að stjórnvöld þurfa mikið, öflugt og stöðugt aðhald. Attac ætlar að fylgjast áfram með framgangi málsins og vill hafa sitt að segja, líkt og hinir fjölmörgu sem lagt hafa hönd á plóginn við að stöðva einkavæðingaráform stjórnvalda.

Attac eru alþjóðleg samtök sem berjast gegn einkavæðingu,  markaðsvæðingu og hnattvæðingu á forsendum stórfyrirtækja. Samtökin mynduðust í kjölfar hins mikla fjármálahruns í Austur-Asíu og víðar árið 1997. Við stöndum nú frammi fyrir öðru hruni, hruni íslenska efnahagskerfisins, og því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fer með yfirstjórn íslenskra efnahagsmála.

Það var einmitt AGS sem gerði illt verra í hruninu í Austur-Asíu með kröfum um frjálst fjármagnsflæði, og hér á landi gengst AGS fyrir því að einkavæða sem allra mest, þar á meðal verðmætar orkuauðlindir landsins. Hrunið er notað sem tækifæri til að hrinda svokölluðum efnahagsumbótum í framkvæmd.

Kjörlendi hamfarakapítalistanna er að flytjast frá "þriðja heiminum" til Evrópu og fyrstu viðkomustaðirnir eru lönd á jaðri álfunnar, þar á meðal Ísland,  Grikkland og Ungverjaland. AGS er ólýðræðisleg stofnun, fulltrúi peningafla heimsins, alþjóðlegur innheimtulögfræðingur. Eins og dæmin sýna virðist meginmarkmið stofnunarinnar vera að gera þau verðmæti upptæk sem enn er að finna í löndum sem nauðbeygð leita aðstoðar alþjóðasamfélagsins, og afhenda verðmætin alþjóðaauðvaldinu. Ungverjar hafa nú vísað AGS á dyr og ættu Íslendingar að fylgja fordæmi þeirra.

Í dag birti DV niðurstöður skoðanakönnunar sem Capacent gerði fyrir Teit Atlason bloggara. Þar kemur fram að 85% landsmanna eru andvíg því að náttúruauðlindir séu seldar erlendum aðilum, hvað þá vafasömum skúffufyrirtækjum. Engar auðlindir eru eins verðmætar nú á tímum og orkuauðlindir. Íslendingar eiga miklar auðlindir, en þær eru ekki ótæmandi. Þær munu ekki falla í verði, síður en svo. En þær koma að litlu haldi verði þær afhentar einkaaðilum á silfurfati, hvað þá að þær verði fullnýttar í hvelli til að nota í stóriðju.

Krafan er því að orkufyrirtækin, framleiðsla og dreifing, verði tekin af markaði. Á meðan þau eru á markaði er sífellt hætta á því að Magma-ruglið endurtaki sig æ ofan í æ, hvort sem fjárfestirinn er íslenskur eða kanadískur, pólskur eða búlgarskur.

Almenningur hefur fengið sig fullsaddann af orðræðu nýfrjálshyggjunnar um frjálst fjármagnsflæði sem drifkraft framfara. Almenningur hefur fengið sig fullsaddann af einkavæðingu, einkavinavæðingu og markaðsvæðingu. Samfélagið þarfnast efnahagslegs öryggis, á það hefur verið ráðist með grimmilegum hætti af fjármagnsöflunum og við verðum að reisa varnir, byggja veggi sem geta skýlt okkur fyrir slíkum árásum. Það hefur enginn gert fyrir okkur, allra síst ríkisstjórnin. Stefnubreyting ríkisstjórnarinnar nú hefur verið knúin fram með markvissu átaki og baráttu fjölda fólks. Fjöldasamstaða ber árangur!

 Við krefjumst þess að ríkisstjórnin hlíti vilja þjóðarinnar, að orkuauðlindir verði teknar af markaði.

Takk fyrir.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 01 Ágúst 2010 21:24 )
 


Síða 1 af 12

Fréttaskot

Þann 4. febrúar n.k. munu þrír fulltrúar frá Attac-samtökunum á Íslandi, þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Bjarni Guðbjörnsson sagnfræðingur og Gunnar Skúli Ármannsson læknir hitta fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló. Jafnframt munu sitja fundinn fulltrúar norsku Attac-samtakanna, en þau hafa skipulagt fundinn ásamt með íslensku deildinni. Yfirskrift fundarins er „Á AGS að fara frá Íslandi?“