Ég er kominn hér sem talsmaður átaksins orkuauðlindir.is, en áskorun okkar Bjarkar Guðmundsdóttur og Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur til stjórnvalda um að stöðva söluna á HS Orku til Magma og til Alþingis um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindunum og nýtingu þeirra hefur nú verið undirrituð af nær 16.000 manns.
Markmið okkar var og er enn að vekja upp umræðuna um þennan gjörning, einkavæðingu orkuauðlindanna áður en það væri um seinan.
Fyrsti áfangi virðist hafa náðst - að fá fram umræðuna:
Stjórnvöld hafa látið undan þrýstingi og nú er leikinn biðleikur sem óvíst er um hvernig fer.
Efnt skal til rannsóknar og möguleikar kannaðir – það er allt gott og blessað að því gefnu að vel verði að þessari rannsókn staðið. Við bíðum niðurstöðunnar.
Hins vegar höfum við bent á það pólitískur vilji er allt sem þarf en staðreyndin er sú að stjórnarflokkarnir eru ekki sammála um stefnuna – vonandi ná þeir áttum – og leggja málið í dóm þjóðarinnar . Í þessu sambandi vil ég benda á að samkvæmt skoðanakönnun sem fjallað er um í fjölmiðlum í dag og Capacent mun hafa unnið fyrir Teit Atlason bloggara eru tæplega 85% landsmanna andvígir því „að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir“. Aðeins 4,5% voru hlynntir, en 10,6% sögðust enga skoðun hafa á málinu.
En sagan af einkavæðingu HS Orku er um margt á huldu. Við höfum lagt áherslu á að birta þurfi upplýsingar um ferlið allt og lýsa því hvernig hér er í pottinn búið.
Eins og fram hefur komið sendum við umboðsmanni Alþingis ábendingu um ýmis atrið sem við teljum ástæðu til þess að skoða varðandi þetta ferli allt - við því höfum við ekki fengið önnur svör en þau að Umbi taki sér lögformlegan tíma (allt að fjórar vikur) til þess að kanna hvort hann ætli að taka ábendinguna til greina.
Þá höfum við sent 3 ráðuneytum, Orkuveitu Reykjavíkur og þeim sveitarfélögum sem tengast málinu, beint eða óbeint, beiðni um að fá afhent öll gögn:
“er varða samskipti viðkomandi yfirvalda og starfsmanna þess við Magma Energy Sweden AB, Magma Energy Corp Canada, Ross Beaty, Geysir Green Energy, Ásgeir Margeirsson, HS Orku og tengda aðila”
Einnig óskuðum við eftir “afritum af minnsblöðum af fundum með ofangreindum aðilum, og afritum af minnisblöðum og greinargerðum starfsmanna er varða Magma Energy, HS Orku, GGE og tengda aðila.” eins og segir í bréfi okkar.





