Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Fréttatilkynningar (íslenska)
Íslenska

Fjárfestingasjóður í anda nýfrjálshyggju

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Á stjórnarfundi Attac á Íslandi sem haldinn var 8. desember var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Attac á Íslandi lýsir furðu sinni á því hvernig Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að stofnun fjárfestingarsjóðs og hyggjast  ráðskast með 30 milljarða af sparifé landsmanna  í áhættufjárfestingar í anda nýfrjálshyggju  án þess að gegnsæi og upplýst samfélagsumræða sé um hvernig standa eigi að þeim fjárfestingum. Þá vekur furðu að í  stjórn hins nýja fjárfestingarsjóðs lífeyrissjóðanna er valið  fólk sem tengist hinum föllnu útrásarfyrirtækjum s.s. Guðfinna S. Bjarnadóttir sem bæði sat í stjórn Baugs og  FL group.

Attac telur brýnt  að endurreisa þau samfélög sem rústað hefur verið fyrir tilstilli óheftrar markaðshyggju. Til þess verður að setja bönd á fjármálastarfsemi, skattleggja hana í þágu félagslegs jafnréttis og setja verður samfélögum ný markmið í anda lýðræðis- og velferðarsamfélaga, þar sem manngildi og gegnsæi verði í hávegum höfð.
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 10 Desember 2009 14:28 )
 



Fréttaskot

Fundur Attac um Magma-málið þann 28. júlí tókst mjög vel og var fjölsóttur, þótt hann væri haldinn í miðjum sumarfríum. Ráðherrar skrópuðu reyndar, og heyrst hefur að það hafi verið af því að þeir þorðu ekki að mæta á fundinn. Í framhaldi af fundinum stóð Attac fyrir að safna undirskriftum undir áskorun orkuauðlinda um Magma málið á Gay Pride. Viðbrögð fólks voru mjög góð og mörg hundruð manns skrifuðu undir áskorunina.

            Á menningarnótt heldur Attac á Íslandi áfram að berjast gegn einkavæðingu íslenskra orkuauðlinda af miklum krafti, og nú með menningardagskrá sem stendur allan daginn og fram á kvöld. Dagskráin verður fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Fjöldinn allur af úrvals rithöfundum, tónlistarfólki, öðrum listamönnum o.fl. munu flytja fjölbreytt menningarefni allan daginn, og kórar syngja. Fólki gefst líka kostur á að undirrita áskorun orkuauðlinda.is allan daginn. Dagskráin verður undir yfirskriftinni „Ísland er ekki til sölu“, sem rímar skemmtilega við eitt helsta slagorð hinna alþjóðlegu Attac samtaka, „The world is not for sale“.

            Á fimmtudagskvöld verður sjálfboðaliðafundur í Húsinu til að undirbúa framkvæmd dagskrárinnar. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að fjölmenna í Húsið og taka þátt í undirbúningnum. Ísland er ekki til sölu!