Attac

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Home Efnisflokkaðir tenglar
Vefhlekkir
Við erum reglulega á vefnum. Þegar við finnum góða síðu þá listum við þær.

Fréttaskot

Kæru félagar,

Magma málið er nú í biðstöðu.
Ný nefnd hefur verið skipuð sem úrskurða á um lögmæti viðskiptanna, líkt og síðasta nefnd þar á undan.

Með fullri virðingu fyrir lögum er samt verið að afvegaleiða umræðuna.
Þetta er pólitískt ágreiningsefni fremur en lagalegt.
Það skortir hins vegar vilja og kjark hjá ríkisstjórninni til að takast á við það.

Það er orkuútrásin sem við horfumst í augu við.
Þjóðerni útrásarvíkinganna er ekki aðalatriðið heldur leikreglur, siðferði og undirliggjandi tilgangur.

Ef við viljum auka þrýsting á ríkisstjórnina þurfum við fleiri undirskriftir, 16 þúsund eru ekki nóg.
Þess vegna hefur sú hugmynd komið upp að safna undirskriftum á blöð.
Næsti laugardagur (Gleðigangan) og 21. ágúst (Menningarnótt) eru tilvaldir dagar.
Til stendur að hittast nk. laugardagsmorgun í Húsinu, Höfðatúni 12 og skipuleggja þetta átak.
Staðfesting (ef næg þátttaka fæst) með tímasetningu verður send út á föstudagskvöldið.

Vinsamlegast hafið samband sem fyrst ef þið sjáið ykkur fært að vera með í þessu.
Einnig gæti þurft aðstoð við að slá undirskriftirnar inn í tölvu.
Ég get því miður ekki svarað tölvupósti eftir hádegi á morgun fram á föstudagskvöld.

Kær kv.- Sigurður - sími 821-8272.

(einnig má skrá sig í attacis@gmail.com)